Sigtryggur Karl



BOGMAÐURINN 

22. nóvember - 21. desember


Lítillfjörkálfur hefur litið dagsins ljós. Bogamannsbarnið er að öllu jöfnu glaðlegtog jákvætt og þægilegt í návist. Það þarf mikla hreyfingu og líklegt er að þaðfari snemma að ganga og skoða heiminn því bogamaðurinn er merki ferðalaga ogstrax í bernsku birtist þörfin fyrir ævintýraferðir af ýmsu tagi. Litlubogamannskrílin þurfa að hafa gott pláss til að hreyfa sig en ef þau fá ekkiútrás fyrir orku sína verða þau eirðarlaus og uppstökk. Bogamenn hafa yfirleittyndi af íþróttum og hið dæmigerða bogamannsbarn er iðulega á kafi í alls konaríþróttaiðkunum. Listin að ala upp bogmann er fólgin í því að finna jafnvægi ámilli frelsisþarfar annars vegar og ábyrgðarkennar og aga hins vegar. Foreldrarættu að veita honum aðhald og venja hann á að ljúka því sem hann er að fást viðáður en hann byrjar á nýju verki. Hann á það til að vera mjög fljótfær ognokkuð kærulaus og því þarf að hjálpa honum að þroska með sér dómgreind ogskynsemi. Bogamannsbarnið verður mikið á ferðinni og um leið og það fer aðkomast sjálft ferða sinna leggur það í ferðalag um nágrennið og síðan lengraþannig að það getur verið erfitt að hafa stöðugt augun á þessu barni. Góðaferð.





Hallú hallú
Spurning um það hvað skeður ef ég skrifa eitthvað hér inn, hvort hitt dettur út..
En já allavegana best að skrifa eitthvað smá, annars breyti ég bara einhverju.. 
En já Litli Kútur kom í heiminn á FSA þann 14. des klukkan 7:18 að morgni til, og var 15 merkur (3745grömm) og 54 cm. Hann lét nú ekki mikið heyra í sér þá og var hæst ánægður, drakk lítið og svaf mikið. Vorum upp á FSA þangað til mamma var alveg búin að fá nóg, og komum heim í hádeginu þann 19. desember og voru síðustu 2 dagarnir mjög lengi að líða, þó það væri stjanað við mann þannig og gott að vera uppfrá, þá er nú alltaf best að vera heimaemoticon
En já mamman var lítið fyrir að vekja snáðan til að drekka og því byrjaði mjólkin seint að koma, og þurfti pilturinn ábót, og fékk staup. En hann fékk það á 3 degi held ég, þá byrjaði piltur loksins að fatta það að hann væri svangur emoticon En  já, stundum var hann óþolinmóður á brjóstið og þá var nóg að taka og spjalla pínu við hann og reyna svo aftur. En já svo fórum við heim og gekk vel í 2 daga, svo hætti hann alveg að vilja brjóstið, og mamman varð óþolinmóð þegar ekki gekk vel að koma honum á brjóstið, svo hún prófaði að kaupa snuddu til að láta hann sjúga, já því hann vissi alveg hvað hann átti að gera, en nennti ekki að sjúga neitt.. og í þau fáu skipti sem það tókst, sofnaði barnið.. Svo eftir barning í nokkra daga, þá gafst mamman upp, já því hún varð pirruð og fúl og lét bitna á öllum í kringum sig, þannig að þessi drengur verður víst bara pelabarn líka.. Mamman kann á svoleiðis og finnst skapið betra þannig líka.. Allavegana stöðugra emoticon 
Svo að eftir það hefur barnið verið duglegt að drekka, ekki sofnað við að drekka og já gengur allt eins og í sögu, nema hvað það að mömmunni finnst kúturinn æla meira heldur en af brjóstinu..

En annars er barnið vært og gott, vaknar einu sinni á nóttu til að drekka, og yfirleitt mjög seint, sofnar oft um 9-10 á kvöldin, og sefur til 5 á morgnana, drekkur, og sofnar aftur og sefur til svona 9-10 á morgnana.. Og já hann sefur mjög mikið.. Sem er gott að mörgu leyti, en mömmunni finnst eitthvað vanta.. emoticon

En það er svo sem betra en að vaka allan sólarhringinn

En já annars er bara að skoðun á morgun og vonandi kemur hún vel út emoticon

Kærar kveðjur

Flettingar í dag: 6
Gestir í dag: 2
Flettingar í gær: 2
Gestir í gær: 2
Samtals flettingar: 35112
Samtals gestir: 13005
Tölur uppfærðar: 17.5.2012 17:02:46